„Sést langar leiðir að þessi maður hefur aldrei stigið á reiðhjól“

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vekur mikla athygli í nýju myndbandi Sjálfstæðisflokksins. Leikararnir Vignir Rafn Valþjórsson og Atli Óskar Fjalarsson segja ljóst að hjólandi borgarfulltrúinn sé með hjálminn öfugt á sér.

Vignir skrifar á Facebook:

„Þegar maður heldur að þessi kosningabarátta (og þessi flokkur) geti ekki náð dýpri lægðum þá henda þau í myndband sem tönglast á því hvað þau séu öll svo samheldin (einmitt!) og henda Kjartani Magnússyni á hjól til að sýna að þau séu alls ekkert alltaf á bíl. Ég kaupi þetta ekki alveg.

Hefur kannski eitthvað með það að gera að hjálmurinn snýr fokking öfugt.“

Atli Óskar svarar Vigni og segir:

„Það sést langar leiðir að þessi maður hefur aldrei stigið á reiðhjól.

Pældu í því hvað það hefur farið mikið af budgetinu í að maska út hjálpardekkin!“

Segir af og frá að hjálmurinn sé öfugur

Kjartan ræðir málið við DV og þvertekur fyrir að hjálmurinn sé öfugur. Hann segist hjóla töluvert.

„Ég þekki þennan hjálm mjög vel og hef átt hann lengi. Það er ekki séns að láta hann tolla ef hann snýr öfugt,“ segir Kjartan við DV.

„Þeir eru kannski mismunandi hjálmarnir en ég skoðaði hjálminn og það er alveg ómögulegt að setja hann á sig öfugan.“

Myndband Sjálfstæðisflokksins: