Sérþjónusta fyrir Bjarna Ben á aðfangadag?

Óskar Steinn Ómarsson, sem skipar 6. sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar veltir nokkrum spurningum upp á Twitter-síðu sinni eftir tíðindi dagsins úr íslenskri pólitík.

Greint var frá því í hádegisfréttum RÚV að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði innt lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um afsökunarbeiðni eftir að greint var frá aðkomu ráðherra í ríkisstjórninni að umtöluðum gleðskap á þorláksmessu í dagbók lögreglu. Umræddur ráðherra var Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, eins og margoft hefur komið fram.

Óskar varpar eftirfarandi spurningum fram og hafa þær hlotið ágætar undirtektir á Twitter:

„Ætli dómsmálaráðherra hafi líka hringt í yfirmann Útlendingastofnunar og þrýst á hana að biðjast opinberlega afsökunar á að hafa vísað þungaðri konu úr landi? Eða hent hælisleitendum út á götu? Eða er þetta bara sérþjónusta sem hún veitir Bjarna Benediktssyni á aðfangadag?“

Valur Grettisson, ritstjóri Grapevine, tekur undir þetta hjá Óskari og segir:

„Hands down besti punkturinn í þessari umræðu. Forstjórar allskonar stofnana mega klúðra öllum mögulegum málum, svo lengi sem ráðherra er ekki viðstaddur.“