Sérsveitin hefur verið kölluð út á Selfossi vegna sprengjuviðvörunar. Hringbraut hefur undir höndum tölvupóst sem forráðamenn í Vallaskóla á Selfossi fengu sent. Samkvæmt heimildum miðilsins er búið að farga sprengjunni.
Í tölvupóstinum segir að upp úr kl. 10:30 hafi skólayfirvöldum fengið upplýsingar um að lögreglan hafi lokað vestur hluta skólalóðar við Tryggvagötu vegna mögulegrar sprengjuhættu.
Grunur leikur á að sprengja liggi á götunni á gatnamótum Tryggvagötu og Engjavegar. Svo virðist vera sem óprúttinn aðili hafi leikið sér að því að búa til heimagerðar sprengjur í bænum, ef marka má umfjöllun Fréttablaðsins um málið.
„Við höfum beðið alla starfsmenn og nemendur í Valhöll og Ú stofum að halda sig inni á meðan sprengjudeild athafnar sig. Ekki er talin þörf á rýmingu skólans eða að nemendur séu sendir heim. Við munum upplýsa ykkur um stöðuna þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.“
Nánar um málið á vef Fréttablaðsins.