Halldór Kristmannsson, náinn samstarfsmaður Róberts Wessman til 18 ára, opnar sig íhelgarblaði Fréttablaðsins um átök sín við Róbert Wessman. Hann steig nýlega fram og vakti athygli á stjórnunarháttum og ósæmilegri hegðun forstjórans.
Í nýrri yfirlýsingu til fjölmiðla segir Halldór að fyrirtækin hafi ítrekað hafa brotið trúnað við sig og sýnt fordæmalausa hörku. Nafni Halldórs var lekið til fjölmiðla, honum sagt upp störfum og stefnt fyrir utan World Class í Smáralind.
Nú síðast hafi viðkvæmum heilsufarsupplýsíngum verið lekið til fjölmiðla og „vel völdum“ tölvupóstsamskiptum Halldórs við Róbert og Árna Harðarson, er varði breskan blaðamann og ásakanir annars háttsetts stjórnanda innan Alvogen.
Halldór segir sérstakt að Alvogen og Alvotech, ákveði enn og aftur að leka upplýsingum til fjölmiðla. En fyrst það hafi verið gert, sé mikilvægt að upplýsa um þau mál í heild sinni. Tölvupóstsamskipti sem Kjarninn fjallaði um á fimmtudag, sýni að breskur blaðamaður var í október 2020, að grennslast fyrir um ásakanir á hendur Róbert og setti sig í samband við fjölmarga samstarfsmenn. Halldór segist ítreka áskorun til fyrirtækjanna um að upplýsa um öll samskipti sín við White & Case og afhenda fjölmiðlum myndbandsupptökur af viðtölum.
„Blaðamaður að nafni Lukas Mikelionis hafði samband við mig í október 2020, en hann hafði þá rætt við við fjölmarga stjórnendur fyrirtækjanna. Fyrrum framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Alvogen og Alvotech segir í tölvupóstsamskiptum á þessum tíma, að umræddur blaðamaður telji sig hafa upplýsingar um ósæmilega hegðun Róberts. Starfsmannastjórinn segir blaðamanninn einnig hafa upplýsingar um fjölmargar sáttir við lykilstjórnendur, sem hafi verið gerðar til að forðast dómsmál. Hann segir jafnframt að ásakanir gagnvart Róbert snúi að ógnandi og ósæmilegri framkomu hans („bullying and harrassment“) gagnvart samstarfsmönnum.
Halldór segir sérlega ósvífið að viðkvæmum heilsufarsupplýsingum hafi verið lekið til fjölda fjölmiðla og að nánast sé óþekkt hér á landi að fyrirtæki beiti starfsfólk slíkri hörku. Í nýlegri umfjöllun Kjarnans, er vísað til veikindavottorðs sem framvísað var í desember 2020, þar sem Halldór óskaði eftir veikindaleyfi af heilsufarsástæðum. Í umfjöllun Kjarnans er sagt að Halldór hafi ekki tilgreint ástæður fyrir veikindaleyfinu en vísað til höfuðkúbubrots á árinu 2020, sem hafi haft áhrif á heilsu hans. Halldór vísar þessu alfarið á bug og að fyrirtækið hafi verið upplýst um heilsufar sitt í gegnum trúnaðarlæknir og að aldrei hafi verið efast um nauðsyn leyfisins.
Í helgarblaði Fréttablaðsins segist Halldór hafa í þrígang þurft að leita á bráðamótttöku vegna öndunarörðugleika.
„Ég þurfti í þrígang að leita til bráðamóttöku vegna öndunarörðugleika og svo eitt kvöldið þegar ég stend upp frá kvöldverðarborðinu, þar sem ég sat ásamt fjölskyldunni, líður yfir mig og ég dett aftur fyrir mig á steingólfið og brýt sprungu á höfuðkúpuna.“