Séra Úlfar Guðmundsson, fyrrverandi sóknarprestur á Eyrarbakka, ætlar að sniðganga vörur frá Kjarnafæði og Goða vegna blótsyrða í auglýsingum.
Úlfar lýsti þessari skoðun sinni á Facebook í færslu sem fjölmiðlamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson deilir með fylgjendum sínum.
„Ég hef einlægan áhuga fyrir góðu íslensku máli. Ég hef því ákveðið að sniðganga vörur frá Kjarnafæði og Goða vegna blótsyrða í auglýsingum,“ segir Séra Úlfar og tekur Magnús Hlynur undir.
„Já, ég er sammála séra Úlfari, þetta eru að mínu mati kjánalegar og skrýtnar auglýsingar frá fyrirtækjunum,“ segir Magnús.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag og bent á að auglýsingaherferð Goða og Kjarnafæðis hafi vakið töluverða athygli nú þegar þorrinn er handan við hornið. Gengur herferðin út á að blóta almennilega í þeim skilningi að gera vel við sig í mat og drykk en samhliða var ákveðið að upphefja gömlu góðu íslensku blótsyrðin í leiðinni.
Á Facebook-síðu Kjarnafæðis má til dæmis lesa eftirfarandi færslu:
„Andskotans þorrinn er rétt handan við hornið og þá er um að gera að blóta almennilega, en hvað í helvítinu ætlar þú að hafa í þínum þorrabakka?“
Sitt sýnist hverjum um þetta og virðast margir þeirrar skoðunar að geti farið aðrar og hófstilltari leiðir til að kynna vörur sínar.