Séra Skúla ekki skemmt: Skilur ekki hvers vegna kirkjan birti mynd af Jesú með vara­lit og brjóst

„Ég skil ekki enn af hverju þau birtu þessa mynd af Jesú með vara­lit og brjóst á aug­lýsingum fyrir barna­starf kirkjunnar. Mark­hópur barna­starfsins kallaði vart eftir slíku og ég sé ekki að hin­segin fólki sé hér ein­hver greiði gerður.“

Þetta segir séra Skúli Sigurður Ólafs­son, prestur í Nes­kirkju, í að­sendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun. Skúli vísar þarna til myndar sem birtist á Face­book-síðu Kirkjunnar en þar er verið að kynna Sunnu­daga­skólann. Á myndinni má meðal annars sjá Jesú Krist með brjóst.

Séra Skúla virðist ekki vera skemmt yfir myndinni og segir hana sýna stereó­týpu sem hann telur að fáir tengi við. En auk þess virki hug­myndin yfir­borðs­leg.

„Hvað ætlum við að gera með þessa mynd annars? Í sumar baðst biskup af­sökunar á fram­göngu kirkjunnar í garð sam­kyn­hneigðra. Full á­stæða var til þess enda var einkar illa staðið að þeim málum á sínum tíma. Á­fram hefði mátt vinna að sam­tali þjóð­kirkju og hin­segin fólks án þess að færa við­kvæm mál­efni í þennan búning.“

Skúli segir að vissu­lega megi tengja guð­fræðina að baki þessari mynd­birtingu við á­kveðna hefð innan kristin­dómsins, þar sem Jesús er birtur sem full­trúi úr minni­hluta­hópi. Sú túlkun hafi þó oftar en ekki komið frá ein­stak­lingum sem til­heyra slíkum hópum.

„Hér kemur hún ofan frá sem kann að orka tví­mælis. Kristin trú byggir vissu­lega á frelsi en því fylgir á­byrgð. Gæta þarf al­úðar og hófs og sýna nær­gætni í hví­vetna,“ segir Skúli og bætir við að margt bendi til þess að sá hópur sem undir­bjó aug­lýsinguna hafi verið þröngur og eins­leitur.

„Reynslan sýnir að þegar svo er háttað er hætt við því að fólk geri mis­tök, alls óháð mann­kostum þess og elju. Það telur sig hafa fundið snjallar lausnir án þess að kanna hvaða spurningar brenna á sam­fé­laginu.“

Skúli segir að þarna séum við komin inn á á­kveðið ein­kenni á mann­legum sam­fé­lögum sem nefna má „flug­dreka­heil­kennið“.

„Það lýsir sér í því að líkur sækir líkan heim og þess er ekki gætt að hlusta á og taka til­lit til and­stæðra sjónar­miða. Í þessu til­viki hefði verið betra að hafa jarð­bundna og var­kára hugsuði með í liði. Allir geta ekki svifið uppi í há­loftum, ein­hver verður að standa á jörðinni og halda í spottann, annars of­rís drekinn og brot­lendir! Til þess að fyrir­byggja það verður fólk að geta sýnt hlut­tekningu (emp­at­hy). Það þarf að geta sett sig í spor annarra.“

Skúli spyr að lokum hvaða þörf hafi verið fyrir hendi að birta þessa aug­lýsingu í barna­starfi.

„Ég kem ekki auga á hana. Þarna hefði mátt fara aðrar leiðir – t.d. sýna fjöl­breytni mann­lífsins í kringum Jesú eða kirkju. Kirkjan er jú sannar­lega opin öllum. Mark­miðinu hefði verið náð án þess að valda þeim úlfa­þyt sem orðið hefur. Ég kalla eftir breyttu verk­lagi í kynningar­málum þjóð­kirkjunnar. Höfum hug­fast að þjóð­kirkja er ekki smá­hópur heldur breið­fylking fólks og taka þarf til­lit til margs konar sjónar­miða.“