Séra Skírnir í­hugar að stefna biskupi per­sónu­lega

Séra Skírnir Garðars­son, sem vikið var frá störfum sem héraðs­prestur í apríl síðast­liðnum, skoðar það nú að stefna séra Agnesi M. Sigurðar­dóttur, biskupi Ís­lands, vegna þjónustu­loka hans.

Fjallað er um málið í Frétta­blaðinu í dag.

Eins og greint hefur verið frá hefur biskup Ís­lands hafnað kröfum séra Skírnis um að aftur­­kalla á­­kvörðun sína um að leysa hann undan þjónustu­­skyldu. Hann sendi biskupi kröfu­bréf fyrr í þessum mánuði þar sem hann bað um að fá að snúa aftur til starfa, ella freista þess að sækja bætur.

Skírni var vikið frá störfum fyrir brot á starfs- og siða­­reglum er hann fjallaði um mál­efni sóknar­barns í við­tali við Vísir.is þann 11. apríl síðast­liðinn. Sakaði Skírnir konu, sem ný­lega var sökuð um skjala­fals í bak­varðar­sveit á hjúkrunar­heimili í Bolungar­vík, um að hafa beitt svikum að fá fjár­hags­að­­­stoð úr líknar­­­sjóði Lága­­­fells­­­kirkju þegar hann var prestur þar árið 2013.

Í kröfu­bréfi Skírnis kvaðst hann iðrast þess að hafa brotið trúnað gagn­vart kirkjunni og skjól­stæðingi sínum. „Þetta var fljót­færni og gert í fram­haldi af mein­lausri fyrir­spurn, ég las ekki yfir próf­örk fréttarinnar sem svo birtist og ég áttaði mig um seinan á að þetta væri al­var­legt mál.“

Í Frétta­blaðinu í dag segir lög­maður Skírnis, Sigurður Kári Kristjáns­son, að málið sé til skoðunar.

„Það er til skoðunar hvort það verði þjóð­kirkjan eða hvort biskupi verði stefnt per­sónu­lega eða hvort þeim verður stefnt „in solidum“,“ segir Sigurður.

Að ó­breyttu mun Skírnir njóta ó­skertra launa út skipunar­tímann sem mun vera til 1. desember næst­komandi.