Vígslubiskupinn í Skálholti sendi í gær kveðju til prestsins í kirkjunni sem brann til grunna í Rautjärvi í Finnlandi á jóladag. Þetta kemur fram í rétta Fréttablaðsins.
„Leyfðu mér að tjá samúð mína vegna þessa taps á svo fallegu og sögulega mikilvægi guðshúsi í eldi á jóladag,“ skrifar séra Kristján Björnsson vígslubiskup.
„Þökk sé guði að kirkjugestir og presturinn komust út heilu og höldnu og var bjargað,“ bætir biskup við og kveðst hugsa til sóknarbarnanna í Rautjärvi.
Lögregluna í Finnlandi grunar að eldri maður, sem fannst látinn við íbúðarhús sem einnig brann á jóladag 30 kílómetra frá kirkjunni í Rautjärvi, hafi viljandi kveikt í henni.
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í 141 árs gamalli kirkju í Rautjärvi í Finnlandi sem brann til grunna á jóladag.
Að sögn fjölmiðla í Finnlandi fór reykskynjari skyndilega í gang í miðri guðsþjónustu. Presturinn sá fyrst reyk og síðan eldtungur sem dreifðu sér um kirkjuna með leifturhraða.
Um þrjátíu manns voru í kirkjunni þegar eldurinn braust út og sluppu allir ómeiddir. Annar prestur sem kominn er á eftirlaun segir starfsmenn kirkjunnar hafa tekið eftir að bundið hafði verið fyrir kirkjudyrnar með snæri.
Tuttugu manna hjálparlið var sent á staðinn en það fékk ekki rönd við reist og gamla trékirkjan brann til grunna.
Tilkynning um eld í íbúðarhúsnæði þrjátíu kílómetra frá kirkjunni barst svo innan við tveimur klukkustundum síðar. Þar skammt frá fannst einstaklingur látinn.
Lögreglan rannsakar nú hvort þessir tveir eldsvoðar tengjast og sem fyrr segir leikur grunur á að kveikt hafi verið í kirkjunni. Það hversu eldurinn breiddist hratt út þykir benda til íkveikju.
Kirkjan í Rautjärvi hefur tvisvar áður orðið eldi að bráð, fyrst 1741 og síðar árið 1872.