Séra Jón Ármann Gíslason, sóknarprestur á Skinnastað, biðlar til fólks að veita fjölskyldu sem á nú um sárt að binda hjálparhönd. Fjölskyldan dvelur nú í Svíðþjóð til að sækja heilbrigðisþjónustu handa syni sínum sem slasaðist mikið vegna bruna.
Fjallað verður um málið í Fréttablaðinu á morgun
„Hann er mikið slasaður, og brunasárin þekja því miður stóran hluta líkama hans. Þakka má skjót viðbrögð réttra aðila, sem komu drengnum undir læknishendur eins fljótt og verða mátti.“ segir presturinn.
„Batahorfur eru taldar góðar, en ljóst er að mikið langhlaup er framundan. Fyrirhugað er að þau dvelji í Svíþjóð í kringum fimm vikur, og eftir það mun löng endurhæfing taka við.“
Fjölskyldan rekur verslunina Ásbyrgi, en málinu fylgir eðlilega mikið tekjutap. „Þeim rekstri, sem þau byggja lífsafkomu sína á, geta þau eðlilega ekki sinnt með hefðbundnum hætti næstu vikur og mánuði. Þess vegna vil ég að höfðu samráði við vini og velunnara fjölskyldunnar minna á styrktarreikning prestakallsins.“
Jón hvetur fólk sem getur og má um það að koma fjölskyldunni til hjálpar á þessum erfiðum tímum. Hann segir að allt sem verði lagt inn á reikninginn næstu vikurnar muni renna óskert til fjölskyldunnar. „Munum að margt smátt gerir eitt stórt. Umfram allt er það von okkar og bæn, að Sigurgeir megi ná heilsu og kröftum á ný.“
Styrktarreikningur prestakallsins á Skinnastað:
Kennitala: 590269-6119
Banki: 0192-26-30411