Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju sparaði ekki stóru orðin í garð Vinstri grænna vegna brottvísana hælisleitenda frá Íslandi en til stendur að senda 300 hælisleitendur úr landi um helgina.
„Í fréttum er það helst að fasistastjórn VG hefur ákveðið að míga á Barnasáttmála SÞ,“ skrifar Davíð í færslu á Facebook.
Davíð segir að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna eigi að gilda um öll börn, í lögsögu hvers ríkis, óháð því hvernig þau komu þangað.
„Samt á að senda fjölda barna úr langþráðu öryggi og skjóli hér á Íslandi, þvert á það sem þeim er fyrir bestu, til að hafast við í fullkomnu reiðuleysi á götum úti á Grikklandi, jafnvel þótt Flóttamannahjálp SÞ hafi af mannúðarástæðum lagst eindregið gegn því að fólk sé flutt þangað,“ segir Davíð og heldur því fram að þetta sé í beinni mótstöðu við það sem Vinstri grænir töluðu um þegar þeir voru í stjórnarandstöðunni.
„Þingið og ráðherrar VG eru ekki lengur bara meðsek um glæpi þessarar ríkisstjórnar gegn mannúð og góðu siðferði, þau eru einfaldlega sek eins og syndin. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“