Sendum grunaða rakleitt til baka aftur

Lærdómurinn af máli glæpahópanna tveggja, Rúmenanna sem mættu til landsins með smit og hundsuðu 2ja vikna sóttkví er að sögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjónn að hafa nána eftirfylgni með þeim sem segjast ætla í sóttkví. Haft verði samband við það fólk til að sannreyna hvort það dvelji þar sem það segist ætla að vera. Vakni efasaemdir um að ætlun viðkomandi sé önnur en að efna sóttkvína, hafi lögreglan heimildir núna til að þess að snúa því fólki aftur úr landi strax í Keflavík.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörum segir í þættinum 21 í dag hjá Lindu Blöndal að ekki sé óttast að slíkir hópar sleppi inn í landið nú líkt og Rúmenarnir.

Allir sem kom til landsins frameftir degi í dag, mánudag létu skima sig fyrir Covid-19 og fylltu út nokkuð ítarlegt trúnaðarskjal um heilsu sína og dvalarstað á Íslandi. Gera má ráð fyrir að einhverjir muni ætla í sóttkví eftir tvær vikur vegna kostnaðar við skimun sem verður 15 þúsund á hvern fullorðinn, þótt það verði hverfandi þar sem ferðamenn vilji njóta frísins.