Nokkuð spaugilegt atvik átti sér stað miðsvæðis í Reykjavík í gær þegar bíll frá Vöku bilaði, þegar hann var að sækja bilaðan bíl.
Til þess að laga ástandið þurfti Vaka að senda stærri Vökubíl til að sækja minni Vökubílinn með bilaða bílnum ofan á.
Valdimar Haraldsson, deildarstjóri akstursdeildar hjá Vöku, segir í samtali við mbl.is að loftpúði hafi sprungið í minni bílnum og var hann bremsulaus og allslaus.
Hann segir að þetta sýnir að Vaka hugisi í lausnum og að það sé ekkert heilagt í þessum geira.
Helga Lind Mar birti mynd af atvikinu á Twitter sem hefur skemmt mörgum.
Í dag var bíll frá Vöku að sækja bilaðan bíl. Síðan bilaði bíllinn frá Vöku svo að annar bíll frá Vöku kom að sækja bílinn frá Vöku og bilaða bílinn. pic.twitter.com/gj8IK3Z5uB
— Helga Lind Mar (@helgalindmar) July 14, 2020