Sendi­herrann í Insta vídeói: Horfðu sett­lega til vinstri

Berg­dís Ellerts­dóttir, sendi­herra Ís­lands í Banda­ríkjunum, hefur heldur betir slegið í gegn á sam­fé­lags­miðlinum Insta­gram þar sem hægt hefur verið að fylgjast með henni í gegnum reikning utan­ríkis­þjónustuna undan­farna daga.

Hún hefur frætt lands­menn um störf sín og starf­semi sendi­ráðsins í Was­hington. Þá hefur hún brugðið á leik og verið ó­hrædd við að sýna á sér mann­legri hliðar.

Í skemmti­legu inn­slagi hér að neðan má heyra hvernig Berg­dís leggur sig alla fram og hvernig að­stoðar­kona hennar ráð­leggur henni að horfa sett­lega til vinstri á meðan hún tekur mynd­band af henni í lyftu.

„Horfðu sett­lega til vinstri“