Sendi­herra Noregs slasaðist í Heið­mörk: „Veit ekki hvað hefði gerst ef þær hefðu ekki fundið mig“

Aud Lise Nor­heim, sendi­herra Noregs á Ís­landi, er á bata­vegi eftir að hafa lent í miklum ó­göngum í Heið­mörk á dögunum. Aud datt illa þegar hún var að hlaupa með þeim af­leiðingum að hún hand­leggs- og fót­brotnaði. Tvær konur komu Aud til að­stoðar og leitar hún nú að þeim til að geta þakkað þeim fyrir.

Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Eðli málsins sam­kvæmt var Aud mjög kvalin og náði hún ekki að þakka konunum sem að­stoðuðu hana. Slysið varð um kvöld­matar­leytið mið­viku­daginn 23. Septem­ber síðast­liðinn en með Aud í för var eigin­maður hennar. Hann fór hins vegar aðra leið og ætluðu þau að mætast á á­­kveðnum stað en þær á­ætlanir fóru út um þúfur eftir að hún datt og slasaðist. Sjálf telur Aud að hún hafi legið bjargar­laus í um korter áður en konurnar tvær komu að henni.

„Ég sá tvær konur koma og þær studdu mig að bílnum sínum og keyrðu með mig á bráða­­mót­töku spítalans í Foss­vogi,“ segir hún við Frétta­blaðið. Hún náði ekki nöfnum kvennanna enda hafði hún um ýmis­legt annað að hugsa á þessum tíma­punkti, enda kvalin mjög.

„Mig langar til að finna þessar konur og þakka þeim,“ segir Aud. „Ég gat ekki gert það á staðnum því að ég gat ekki hugsað um neitt annað en að komast á spítalann. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef þær hefðu ekki fundið mig,“ segir hún.

Hún vonast til að konurnar hafi sam­band og segir Aud auð­veldast að gera það í gegnum norska sendi­ráðið, sem stað­­sett er að Fjólu­­götu 17 í Þing­holtunum. Síma­­númerið þar er 520-0700.