Suzuki Ryotaro, sendiherra Japans hér á landi, hefur undanfarna daga slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Twitter. Suzuki er nýtekinn við stöðunni og hefur farið mikinn á miðlinum þar sem hann blandar geði við Íslendinga.
Ryotaro hitti Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra á fundi í gær og virtist hann vera yfir sig hrifinn af ráðherranum. Birti hann mynd af sér með Bjarna og skrifaði falleg orð.
„Ég hitti þennan mann á skrifstofunni hans í dag,“ skrifar Ryotaro á ensku á Twitter. „Eins og þið sjáið á myndinni, að þá var hann mjög hávaxinn og myndarlegur !!“ skrifar sendiherrann.
Hann lætur svo fylgja með í sviga: „(Og snjall líka, að sjálfsögðu). Að standa við hlið hans lætur mig líta út fyrir að vera lítill.“
Bjarni svaraði sendiherranum svo um hæl. „Ánægjan var öll mín Suzuki Ryotaro, og þú ert ekki svo slæmur sjálfur!“
The pleasure was all mine @SUZUKIRyotaro1, and you’re not too bad yourself! https://t.co/CdNVQCsFwA
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) July 7, 2021