Maður var á dögunum dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda öðrum manni fjölda hótanna á einni nóttu.
Hótanir þessar bárust í SMS-skilaboðum í ágúst á síðasta ári á milli hálf fimm um nóttina og hálf tíu um morgunin. Þær vörðuðu meðal annars líkamsmeiðingar og líflát.
Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi sent skilaboðinn vegna þess að fyrrverandi kærasta hans hafði byrjað með hinum manninum, semsagt þeim sem hann hótaði. Hann kenndi hinum manninum um sambandslit sín og kærsutu sinnar.
Í hótununum gaf maðurinn til kynna að hinn hefði beitt konuna ofbeldi.
Maðurinn vildi meina að ekki væri um hótanir að ræða, heldur „fyllerísrugl“ og að markmiðið hefði ekki verið að skaða neinn. en dómurinn taldi ölvun hans ekki leysa hann undan refsiábyrgð.
„Ef þú ógnar B aftur.. skaltu vita að það yrði þinn DAUÐI!!“
„Ein hótun í viðbót, og ég geng frá þér, helvítis óþverrinn þinn“
„Sömu sekúndu og þú sleppir orðinu Þá mæti ég Tek þig og flái þig“
„En A í alvöru. Þér tókst að losa mig frá B. en um leið kallaðirðu yfir þig HELVÍTI“