Forsvarsmenn líkamsræktarstöðva á höfuðborgarsvæðinu krefjast þess að þeir fái að opna sínar stöðvar á sama tíma og sundstaðir, eða þann 18. maí næstkomandi eins og stefnt er að.
Björn Leifsson, eigandi World Class, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið. Hefur hópurinn sent Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni bréf um þetta. Eins og gefur að skilja hafa lokanirnar haft mikil áhrif á rekstur líkamsræktarstöðva.
Björn ræddi þessa stöðu við Fréttablaðið í gær og sagðist hann ekki skilja muninn á því að fara í sund, Hagkaup eða líkamsrækt.
Þá hafi áhersla verið lögð á hreinlæti á öllum líkamsræktarstöðvum, þær væru jafnvel betri þar en á sundstöðum.
„Eins og þetta var í restina hjá okkur var allt sprittað í tæk“tlur og tveggja metra reglan virt. Þar fyrir utan þurfum við ekki einu sinni á búningsklefunum að halda við opnun, þannig ef eitthvað erum við mikið betur í stakk búin til að opna heldur en sundlaugarnar. Við fáum engin rök og þeir svara okkur ekki einu sinni,“ sagði hann við Fréttablaðið.
Upplýsingafundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra fer fram í dag klukkan 14. Má fastlega gera ráð fyrir því að þar verði Þórólfur spurður út í erindi forsvarsmanna líkamsræktarstöðvanna.