Slysavarnafélagið Landsbjörg biður fólk um að vera vel búin og örugg á ferðinni í óveðrinu sem gengur yfir Íslands þessa dagana. Ferðalag á vanbúnum bílum er ekki bara vandræði fyrir bílstjóra hans, heldur marga aðra sem ekki komast fram hjá.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg, sem vilja gefa ferðalöngum ráðleggingar til ferðalaga í þeirri ófærð sem nú ríkir á landinu.
„Í ljósi atburða undanfarinna daga vill Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetja alla til að huga vel að útbúnaði bifreiða sinna. Ferðalag á vanbúnum bíl getur ekki bara þýtt vandræði fyrir bílstjóra hans, heldur marga aðra sem ekki komast fram hjá,“ segir í tilkynningunni.
Mælt er með að fólk sé með skóflu, hlý vetrarföt og góða skó í bílnum ef þú ert að fara út í veðrið til að moka upp bílinn eða aðstoða aðra.
„Látum aðra vita af ferðum okkar, það er skynsamlegt að skilja eftir ferðaáætlun á safetravel.is og þar er einnig að finna mikilvægar upplýsingar um færð og veður,“ segir Landsbjörg og bætir við: „Förum ekki af stað ef aðstæður eru tvísýnar. Sófinn er jú notalegri en skaflinn,“ segir Landsbjörg. Þá eru þeir sem lenda í vandræðum beðnir um að hringja í 112.