Sema Erla skorar á unga Sjálfstæðismenn: Hvar eru þeir nú?

Íris Ellenberger, dósent við sagnfræðideild Háskóla Íslands, hefur gagnrýnt nýtt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann mælti fyrir frumvarpinu á dögunum og Íris virtist ekki vera sátt með orðræðu hans og kallaði hana rasíska í færslum á Twitter.

„Dómsmálaráðherra var rétt í þessu að mæla fyrir útlendingafrumvarpinu. Fjallar um "góðu" flóttamennina sem þurfa "raunverulega á skjóli að halda" og ýjar þar með að því að það séu "slæmir" útlendingar með annarlegar hvatir að baki umsóknum sínum. Þetta er mjög varasöm orðræða.“ sagði Íris og bætti við:

„Hún er til þess fallin að búa til falska tvíhyggju sem demóníserar hluta hælisleitenda sem falla ekki að mjög þröngri skilgreiningu stjórnvalda á því hvað sé "raunveruleg" þörf á skjóli. Látum ekki blekkjast af þessu rasíska og teknókratíska bulli.“

Sema Erla Serdar, for­maður hjálpar­sam­takanna Solaris, tók undir þessa gagnrýni Írisar. Þá velti hún fyrir sér hvar ungu Sjálfstæðismennirnir væru nú, en á dögunum sögðust þeir fordæma rasíska orðræðu, sama hver ætti í hlut. Hún spurði hvernig stæði á því að þeir væru ekki búnir að fordæma Jón Gunnarsson.

„Hvar eru þessir ungu sjálfstæðismenn sem fordæmdu hér um daginn rasíska orðræðu, sama hver á í hlut? Hvernig er það, eru þeir ekki örugglega búnir að fordæma dómsmálaráðherrann sinn og þessa hættulegu orðræðu hans, eðaaa?“ sagði Sema.