Sema Erla sakar Sig­mund Davíð um að vera orðinn nas­isti: „Hættur að fela það“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, er ræðu­maður á ráð­stefnu í Sví­þjóð sem Stundin segir að sé skipu­lögð af sænskum þjóð­erni­söfga­mönnum.

Sam­kvæmt Stundinni er meiri­hluti ræðu­manna tengdir stjórn­mála­flokkum eða sam­tökum sem reka harða inn­flytj­enda­stefnu og breiða út kyn­þátta­hatur.

Aðrir ræðu­menn á ráð­stefnunni eru sagðir hafa meðal annars lofað Adolf Hitler og af­neitað hel­förinni.

Ráð­stefnan ber nafnið Svenska Bok- & Mediemässan, eða Sænska bóka- og fjöl­miðla­messan, og verður haldin í Stokk­hólmi 20. ágúst næst­komandi. Ráð­stefnan er opin­ber­lega kynnt sem ráð­stefna um tjáningar­frelsi, en er í raun skipu­lögð af sam­tökum sem hafa það að mark­miði að tengja saman aðila með ó­líkar á­herslur innan þjóð­erni­söfga­hreyfingar Sví­þjóðar og efla hana.

Frétt Stundarinnar hefur farið öfugt í margar í dag og keppast net­verjar við að bölva Sig­mundi. Sema Erla gengur svo langt að segja Sigmund Davíð nasista en notar stjörnu til að fela orð sín fyrir algrími Twitter.

Hægt er að lesa frétt Stundarinnar í heild sinni hér.