Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum, gagnrýnir það mjög að grínistinn Björn Bragi Arnarson skuli vera væntanlegur aftur á skjá landsmanna í haust.
Vísir greindi frá því í gær að á laugardag muni spurningaþátturinn Kviss, í umsjón Björns Braga, fara í loftið á Stöð 2.
Sema Erla fór mikinn á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún gagnrýndi Björn Braga og fjölmiðla landsins fyrir að gefa honum „platform“.
Sema rifjaði til dæmis upp uppistand Björns Braga frá árinu 2012 þar sem „N-orðið“ kom nokkuð við sögu. Sagði Björn meðal annars að það væri erfitt að útskýra ýmis nöfn hér á landi fyrir erlendum ferðamönnum, nöfn eins og Surtsey, Surtshelli og sælgætið sem stundum er kallað negrakossar. Umrætt myndband er aðgengilegt á YouTube.
Þá rifjaði Sema Erla upp mál Björns Braga frá árinu 2018 þar sem hann náðist á upptöku káfa á ungri stúlku. Í kjölfarið á því máli hætti hann einmitt sem spyrill í spurningaþættinum Gettu betur. Loks rifjar Sema Erla upp mál Péturs Jóhanns Sigfússonar í sumar þar sem hann hermir eftir konu sem talar með asískum hreim. Björn Bragi tók umrætt myndband upp og hló dátt að Pétri.
Sema Erla sagðist á Instagram-síðu sinni neita að samþykkja það að maður sem hefur gerst sekur um „rasisma, kvenfyrirlitningu og kynferðislega áreitni“ skuli fá allt þetta pláss.
„Það væri óskandi að allir þessir „þjóðþekktu einstaklingar“ sem taka þátt í þessu með honum myndu hætta þessari meðvirkni sem heldur þessu gangandi. Mér er svo misboðið. Það er til fullt af hæfileikaríku og duglegu fólki á Íslandi sem kemst ekki að því plássin eru frátekin fyrir alla Birni Bragana!“
Sema Erla gagnrýndi fjölmiðla einnig og sagði að ábyrgð þeirra væri mikil.
„Með því að gefa manninum platform er miðilinn að segja að hegðun hans og framkoma sé í lagi. Fjölmiðillinn sér ekkert athugavert við það að setja eitraða karlmennsku í loftið og senda inn á heimili fólks. Með því ýtir fjölmiðillinn undir normalíseringu á kvenfyrirlitningu og rasisma. Með því skemmir hann fyrir baráttunni gegn mismunun, ójöfnuði, rasisma og óréttlæti. Það gera þau líka sem taka þátt í þessu með honum.“
Í færslunni, sem Sema Erla setti í „story“ hjá sér á Instagram, sést einnig þegar hún tilkynnir uppistand Björns Braga á YouTube – væntanlega í þeirri von að það verði fjarlægt.
Hún segir enn fremur: „Ef ég væri Björn Bragi myndi ég skammast mín fyrir þetta, biðjast afsökunar á þessum rasisma og taka þetta af YouTube. Það er engin hætta á að það gerist svo það er ekkert annað í stöðunni en að reporta þetta.“