Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum, mun ekki taka sæti á neinum lista hjá Samfylkingunni fyrir komandi kosningar. Þetta kemur fram í opnu bréfi sem Sema Erla birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi en hún hefur barist ötullega fyrir réttindum flóttafólks á undanförnum árum.
Kæru vinir og félagar, ég vil nýta þennan vettvang til þess að þakka öllum þeim sem tilnefndu mig á lista Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar sem fara fram í haust, jafnt í Reykjavík sem og í Kraganum. Mér þykir mjög vænt um stuðning ykkar og ég met hann mikils. Ég tók ákvörðun um að afþakka boð um þátttöku í umtalaðri könnun hjá félaginu í Reykjavík og ég mun ekki taka sæti á neinum lista hjá flokknum fyrir komandi þingkosningar.“
Sema Erla hefur starfað innan Samfylkingarinnar á undanförnum árum, en hún var formaður framkvæmdastjórnar flokksins, formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi og var í þriðja sæti á lista flokksins í Kraganum fyrir kosningarnar 2016.
„Þangað vildi ég stefna þá. En í dag slær hjarta mitt annars staðar. Ég hef síðustu ár helgað mig baráttunni fyrir mannréttindum, réttlæti, jafnrétti og mannúð, meðal annars fyrir fólk á flótta og aðra jaðarsetta hópa og gegn fordómum, hatursorðræðu, mismunun og rasisma í fjölmenningarsamfélaginu okkar. Ég er stofnandi og formaður hjálparsamtaka fyrir fólk á flótta sem hafa hjálpað hundruðum einstaklinga í neyð frá stofnun samtakanna árið 2017, þökk sé stuðningi ykkar.“
Sema bendir á að samtökin hafi komið í veg fyrir tugi, jafnvel hundruð, brottvísanir barna, fjölskyldna og einstaklinga sem senda átti úr landi og aftur á flótta.
„Það er ótrúlegur árangur þrátt fyrir að engar raunverulegar umbætur hafi orðið á málaflokknum síðustu ár. Þeirri baráttu er því alls ekki lokið og ég ætla að halda áfram að veita fólki á flótta rödd í samfélaginu okkar og berjast fyrir mannréttindum þeirra þar til við sjáum umbætur á málaflokknum. Að taka sæti á lista stjórnmálaflokks fyrir kosningar finnst mér ekki haldast í hendur við það markmið.“
Sema segist vera langt frá því að leggja baráttuskó sína á hilluna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir nýnasista, rasista og þjóðernissinna til að þagga niður í henni.
„Þó mínar áherslur og mín baráttumál eiga vissulega erindi á Alþingi þá getum við ekki öll verið að berjast á sama stað. Það eru þó nokkrir einstaklingar sem eiga sæti á þingi og enn fleiri sem gefa nú kost á sér fyrir næstu kosningar, fyrir nokkra flokka, sem ég treysti fyrir því að leggja áherslu á mannréttindi og mannúð og að berjast gegn mismunun og óréttlæti inni á þingi.“
Sema bendir svo á að það sé oft þannig að þau mál sem fara í gegnum þingið og eiga að bæta samfélagið okkar geri það vegna þrýstings utan frá.
„Í baráttunni hef ég átt í góðu samstarfi við fólk þvert á flokka og á ekki von á öðru en að það haldist óbreytt. Eins og staðan er í dag ætla ég því að vera áfram í liði baráttufólks fyrir betra samfélagi og betri heimi, utan þings, og ég vona að ég njóti sama stuðnings ykkar til þess áfram. Hver veit hvað gerist svo síðar!“
Kæru vinir og félagar, ég vil nýta þennan vettvang til þess að þakka öllum þeim sem tilnefndu mig á lista...
Posted by Sema Erla Serdar on Miðvikudagur, 10. mars 2021