Selur notaða PlayStation 5 á 200 þúsund – Ívar: „Þetta er orðið fáránlegt“

Mikill titringur varð inni á sölusíðunni Brask og brall á Facebook í dag þegar PlayStation 5 leikjatölva var sett á sölu fyrir 200 þúsund krónur. Seljandinn heitir Mariusz Fester og er staðsettur í Reykjanesbæ, hann segir skýrt: „Það er ekki hægt að semja um verðið.“

Mikill skortur er á nýjustu PlayStation tölvunni, þeirri fimmtu, um allan heim og seljast þær alltaf upp strax þegar þær koma í verslanir á Íslandi. Þá er verðmiðinn undir 100 þúsund krónum, þá fyrir glænýja.

Inni á sölusíðum á borð við Brask og brall er algengt að beðið sé um 200 þúsund krónur, en einnig besta tilboð, sem eru gjarnan að nálgast 200 þúsund krónurnar.

Margir hafa ausið skömmum yfir seljandann, sumir hafa boðið honum tilboð á borð við bananabrauð auk 3.500 krónum.

Ívar nokkur sagði það sem flestir voru að hugsa: „Þetta er orðið fáránlegt“