Netverjinn Selma Lára Schram segir aðstæður hér á landi vegna leghálsskimana óboðlegar, í Twitter færslu.
Löng bið hefur verið eftir niðurstöðum úr sýnarannsóknum eftir að heilsugæslan tók við skimunum af Krabbameinsfélaginu um áramótin, eða 2 til 3 mánuðir. Kom fram í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins á dögunum að tafirnar eigi rót að rekja til vandamála í hugbúnaði og upplýsingakerfum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tók við verkefninu.
„Nei sko þetta leghálsskimana fuck up er ólíðandi
ég er að brjálast, að leghafar lifi mánuðum saman í óvissu og ótta um líf sitt og heilsu vegna einhvers ~kerfisgalla~ er óboðlegt,“ segir Selma Lára.
„Af hverju er ekkert gert í þessu af neinu viti? það er bókstaflega verið að stofna lífi okkar i hættu.“
nei sko þetta leghálsskimana fuck up er ólíðandi
— slemmi (@selmalaraa) July 19, 2021
ég er að brjálast, að leghafar lifi mánuðum saman í óvissu og ótta um líf sitt og heilsu vegna einhvers ~kerfisgalla~ er óboðlegt
af hverju er ekkert gert í þessu af neinu viti? það er bókstaflega verið að stofna lífi okkar i hættu