Selma María Cassaro, fata- og innanhúshönnuður, biður á Facebook um aðstoð við að hafa uppi á afa sínum Charlie sem bjó á Long Island í New York ríki í Bandaríkjunum og átti í sambandi við ömmu hennar, Jónu Lilju.
Selma hefur ekki miklar upplýsingar um hann og segir þetta kunna að vera líkt og að reyna að finna nál í heystakki. Hún vonast til þess að færslan sín berist vestur um haf til Long Island.
Hún segir Charles, sem var ávallt kallaður Charlie, sennilega verið fæddan kringum 1950 og var hann Bandaríkjamaður af ítölskum ættum. Hann ók um á mótorhjóli og í hann vantaði eina tönn. Hann vann sem þjónn í Huntington townhouse en einnig í verslun Sears.