Selfyssingar unnu 104 milljónir: „Vinningurinn var í veskinu hjá konunni hans“

Hjón frá Selfossi unnu 104 milljónir króna í lottóinu sem fram fór 26. desember. Miðinn var keyptur í Krambúðinni á Selfossi. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, sagði við RÚV í morgun að þegar fréttir voru fluttar af vinningnum í síðustu viku hafi maðurinn sagt við konuna sína að hann vonaði að vinningurinn komist í góðar hendur. „Hann vissi þá náttúrulega ekki að vinningurinn var í veskinu hjá konunni hans,“ sagði Stefán. Vinninginn sóttu þau til Íslenskrar getspár.

„Og hingað komu þau bara mjög sæl og ánægð!“