Seldu í Íslandsbanka þremur dögum síðar og græddu nokkur hundruð milljónir

Sex fjárfestingarsjóðir, sem fengu úthlutað um tveggja prósenta eignarhlut í hlutafjárútboði Íslandsbanka á dögunum, seldu bréf sín þremur dögum eftir að bankinn var skráður á markað í síðustu viku.

Fjallað er um þetta í Markaðnum, sem fylgir Fréttablaðinu í dag. Eins og kunnugt er hækkaði gengi bréfanna umtalsvert eftir að þau voru skráð á markað í síðustu viku.

Um er að ræða erlenda fjárfestingarsjóði en samkvæmt Markaðnum má gera ráð fyrir að söluandvirðið hafi numið samtals nærri fjórum milljörðum króna. Sjóðirnir keyptu á rúmlega þrjá milljarða króna og má því áætla að söluhagnaður erlendu sjóðanna hafi numið á bilinu 600-800 milljónum króna.