Segja Þorstein Má hafa gleymt þessu í afsökunarbeiðninni

Afsökunarbeiðni Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag hefur vakið talsverða athygli. Ekki eru þó allir á því að um fullgilda afsökunarbeiðni sé að ræða og ýmislegt vanti þar upp á.

Sjá einnig: Þorsteinn Már biðst afsökunar: „Við gerðum mistök“

Í yfirlýsingunni sagði Þorsteinn að Samherji hefði gert mistök og að ámælisverðir viðskiptahættir hafi fengið að viðgangast í starfsemi fyrirtækisins í Namibíu.

„Veikleikar voru í stjórnskipulagi og lausatök sem ekki áttu að líðast. Við brugðumst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið uppnámi hjá starfsfólki okkar, fjölskyldum, vinum, samstarfsaðilum, viðskiptavinum og víða í samfélaginu. Við hörmum þetta og biðjumst einlæglega afsökunar,“ sagði meðal annars. Hér má lesa afsökunarbeiðnina í heild sinni.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bendir á að þó að forstjórinn viðurkenni að fyrirtækið hafi stundað ámælisverða viðskiptahætti varpi hann um leið ábyrgð á manninn sem frá þeim skýrði, uppljóstrarann Jóhannes Stefánsson.

„Enn hefur fyrirtækið ekki beðið afsökunar þá blaðamenn sem búið hafa við skipulegar ofsóknir af hálfu þess og enn virðist fyrirtækið ætla að halda áfram að hundsa RÚV og láta sem umfjöllun þar sé vakin af persónulegri óvild frekar en að fjölmiðilinn sé einfaldlega að sinna eftirlitshlutverki sínu,“ segir Guðmundur Andri.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir að Þorsteinn Már sé ekki að biðjast afsökunar á öðru en því að upp komst.

„Já og afsökunin felur í sér ásökun um hendur þeim sem sagði frá. Afsökunin beinist ekki að þeim sem voru arðrændir né þeim sem voru í hálft annað ár hundeltir af skæruliðum. Það er ekki verið að biðjast afsökunar á afbrotum sem eru til rannsóknar heldur „tæknilegum mistökum“.

Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og stofnandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, deilir sama sjónarmiði og Guðmundur Andri og segir að ýmislegt hafi gleymst í afsökunarbeiðninni:

„Samherji biðst afsökunar, aftur og nýbúinn. Ég bíð eftir að sjá nöfn beðin afsökunar eins og Helga Seljan, Ásgeir Jónsson, Jón Steinsson, Ólínu Þorvarðardóttir, Blaðamannafélagið, aðrar útgerðir ofl. ofl. sem hafa orðið fyrir barðinu á kvótaþegunum.“

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona, hefur skoðað afsökunarbeiðnina og segir:

„Ef maður rýnir í þessa bókmenntagrein sem afsökunarbeiðnir Samherja óneitanlega eru, þá er Þorsteinn Már ekki að biðjast afsökunar, heldur er að hann að biðjast afsökunar fyrir hönd Jóhannesar sem óneitanlega nokkuð sérstakt og bætir engu við málið eða það sem þegar hefur komið fram.“