Segja Gumma Kíró og Línu Birgittu þykjast hafa hannað gler­augu sem kosta klink hjá AliExpress

Net­verjar hafa bent á um­tals­verð líkindi á milli lúxus­sól­gler­augna M­oxen Eyewear og ó­dýrra sól­gler­augna sem hægt er að kaupa á netinu, og telja ein­hverjir víst að M­oxen Eyewear sé hrein­lega að endur­selja gler­augu á tals­vert hærra verði. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Það er stjörnuparið Lína Birgitta Sigurðar­dóttir og Guð­mundur Birkir Pálma­son, betur þekktur sem Gummi Kíró, sem er á bak við M­oxen Eyewear.

Í við­tali við mbl.is halda þau því fram að þau hafi sjálf hannað gler­augun en líkindin eru frekar mikil.

Grétar Þór Sigurðs­son, blaða­maður Kjarnans, birti myndir af tveimur týpum af sól­gler­augum M­oxen Eyewear á Twitter í gær, á­samt tveimur myndum af gler­augum á AliExpress.com. Af þeim myndum að dæma eru líkindin ó­tví­ræð.

„Nei, ég trúi þessu ekki. Þau hjá Ali bara búin að stela hönnun Línu Birgittu og Gumma kíró.“ skrifaði Grétar með kald­hæðnis­legum brag.

Færsla Grétars hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og hlotið miklar undirtektir. Þá hefur fólk bent á líkindi annarrar týpu Moxen Eyewear við gleraugu sem fást á Alibaba.com.

Gleraugun sem fást á Aliexpress og Alibaba eru talsvert ódýrari en þau hjá Moxen Eyewear og kosta almennt nokkur hundruð krónur, og þau ódýrustu auglýst á einungis eina krónu, en þar er þó sendingarkostnaður og önnur slík gjöld ekki tekin með.

Auglýst verð á sólgleraugum Moxen Eyewear eru aftur á móti á bilinu 7990 til 8990 krónur. Netverjar gefa margir hverjir til kynna að Lína og Guðmundur kaupi gleraugun og selji þau aftur á talsvert hærra verði.