Segja Guðrúnu liðsauka fyrir öryrkja og eldri borgara: „Ég er manneskja orða minna“

„Ég er líka bara manneskja orða minna,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Silfrinu í gær í umræðum um kjarasamninga. Þessi stutta setning hefur ómað í eyrum eldri borgara og öryrkja sem tóku eftir skrifum Magnúsar L. Sveinssonar, fyrrverandi formanns VR, sem sagði eldri borgara og öryrkja hafa eignast öflugan bandamann í Guðrúnu. Í síðustu viku vísaði hann í orð hennar úr grein í Fréttablaðinu árið 2019, þar sagði hún:

„Samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða ætti að vera efst á forgangslista við endurskoðun lífeyriskerfisins okkar. Skerðing lífeyris frá Tryggingastofnun er slík að ekki verður við unað. Svona gerum við einfaldlega ekki gagnvart eldri borgurum og öryrkjum landsins. Svo langt er gengið að ég tel grófustu skerðingarnar jafngilda árás á mannréttindi og þar með ljótan blett á annars ágætu tryggingakerfi.“

Magnús sagði: „Skerðing lífeyris frá Tryggingastofnun er slík að ekki verður við unað. Svona gerum við einfaldlega ekki gagnvart eldri borgurum og öryrkjum landsins. Svo langt er gengið að ég tel grófustu skerðingarnar jafngilda árás á mannréttindi og þar með ljótan blett á annars ágætu tryggingakerfi.“

Grái herinn lýsir því yfir á Facebook að þeim hafi borist liðsauki með Guðrúnu: „ Vonandi lætur hún ekki sitt eftir liggja við að lagfæra þetta ástand.“