Hávær umræða skapaðist í Facebook-hópnum Beauty Tips um nýjustu bók Sólrúnar Diego, Skipulag, sem kom út nýverið. Talsvert ósætti er í garð villu í dagatali októbermánaðar, sést í skjáskotum að í bókinni er 2. október sé á föstudegi, en hann er í raun á laugardegi.
Sólrún hefur gefið sér gott orð síðustu ár sem bókahöfundur, á bókin hennar Skipulag að nýtast öllum sem vilja ráðstafa tímanum betur, einfalda verkefni og verða afkastameiri.
„Vona að þið farið fram á endurgreiðslu eða nýja bók. Sorry en það hefði kannski verið sniðugt fyrir hana að láta einhvern fara yfir bókina áður en hún fór í prent,“ segir í einni athugasemdinni sem fær mikinn stuðning.
Vöknuðu þá spurningar um hvort bókin væri þá gölluð að öllu leyti. „Að sjálfsögðu er alveg hægt að nota bókina. Þetta er bara ein opna í bókinni þ.e. yfirlit yfir október mánuð sem er vitlaust dagsett,“ segir ein í athugasemd. Segir önnur að villur séu í fleiri mánuðum í bókinni.
Þá segjast nokkrar hafa sent pósta á bæði útgefanda bókarinnar og Sólrúnu sjálfa, ein sem segir að hún hafi látið vita af villunni í byrjun desember, vakti það hörð viðbrögð: „Vá hvað ég er aldrei að fara að kaupa neitt frá henni aftur!,“ sagði ein við þessu.
Vinkona til varnar
Vinkona Sólrúnar, að eigin sögn, kom henni til varnar og sagði: „Ég skil vel ykkar vonbrigði sem þið upplifið núna. Mig langar samt að biðja ykkur að taka nokkrar mínútur bakka út úr æsingnum og hugsa hvort þessi opna (ekki sjálfir skipulags reitirnir heldur eingöngu yfirlit mánaðarins) hefur að geyma minniháttar villu miðað við nytsemi og vel gerða bók í heildina. Slíkt hefur gerst og þá mun stærri villur fyrir vikið sést í jólabókaflóði. Minni á kærleik og þakklæti.“
Var henni þá svarað:
„Þó þetta sé smávegis villa þá er þetta villa. Myndir þú vera persónulega sátt ef þú keyptir þér fína peysu í Zara en fengir hana heim með gati? Myndir þú ekki vilja skila henni og fá endurgreiðslu eða allavega nýja vöru?“
Vinkonan svaraði þá að bragði:
„Því miður urðu mannleg mistök og getur gerst. Ég er ekki sammála þér varðandi gat í flík og þessa umræddu villu. En leiðinlegt að þú upplifir það þannig.“
„Gallað er gallað“
Telja margir illa vegið að sé sem neytendum að villa sé í bókinni:
„Gallað er gallað og það að hún einnig hefur ekkert getað svarað fyrir sig eða að lágmarki stoppað sölu á bókunum þegar hún veit fullvel núna að þessi galli er til staðar er frekar lélegt. Hún græðir ekkert nema lélegt mannorð því miður.“
Önnur segir:
„Gallinn er ekki ástæðan fyrir ósætti heldur er ábyrgðar- og aðgerðarleysi seljanda (og beinlínis óheiðarleiki að selja vöru áfram án þess að taka fram galla og t.d. lækka verð) með öllu óásættanlegt.“
Vilja nokkrar meina að tipp-ex geti hæglega lagað vandann. Öðrum finnst mistökin ekki þess eðlis að endurgreiðslu sé þörf:
„Endurgreiðslu fyrir þetta? Íslenskasta sem ég hef heyrt.“