ViðskiptaMogginn greinir frá því í dag að Bakarí Jóa Fel sé í kröppum dansi og ýmsir hafi rekið upp stór augu þegar þeir komu að luktum dyrum í útibúi fyrirtækisins í Borgartúni í vikunni.
ViðskiptaMogginn segist hafa heimildir fyrir því að eigandi húsnæðisins hafi höfðað útburðarmál vegna vangoldinnar húsaleigu. Þá hefur blaðið heimildir fyrir því – og vísar í gögn – að vanskil fyrirtækisins nemi tugum milljóna og tengjast þau ekki einungis húsaleigu. Þá segir blaðið að til skoðunar sé að loka fleiri útsölustöðum, til dæmis í Smáralind og við Hringbraut, en ekki liggi fyrir hvort af því verði.
Í fréttinni kemur fram að blaðið hafi gert ítrekaðar tilraunir til að ná í Jóhannes Felixson, eiganda bakarísins, en án árangurs.