Segja allar líkur á að saga Páls af „við­snúningi“ sé upp­spuni: „Engin við­skipti stemma við sögu Páls“

Skömmu eftir sölu Banka­sýslunnar á 22,5% hlut ríkisins í Ís­lands­banka birti Páll Magnús­son odd­viti Heimeyjar­listans í komandi kosningum sögu á face­book um að kunningi hans hafi með við­snúningi á einum sólar­hring grætt 10 milljónir með því að kaupa í Ís­lands­banka og selja bréfin daginn eftir.

Mikið hefur verið rætt um þessa frá­sögn Páls og sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í Sprengi­sandi á sunnu­daginn að hún gengi ein­fald­lega ekki upp þar sem bréfin voru ekki af­hent fyrr en sex dögum eftir söluna.

Páll benti síðan á það rétti­lega í gær að það hefði verið hægt að selja daginn eftir út­boðið meðal annars með fram­virkum samningum.

Sam­kvæmt skoðun Við­skipta­blaðsins kemur hins vegar í ljós að enginn fór í slík við­skipti daginn eftir út­boðið og því gengur saga Páls ekki upp.

Páll sagði að vinurinn hefði lýst við­skiptunum sem „snöggum snúning“ sem gæti lík­lega gert kunningja Páls 10 milljónum ríkari yfir nótt, sem hefði svo staðist nánast upp á krónu þegar hann hefði selt milljón hluti sem hann skráði sig fyrir í út­boðinu með 10 króna hagnaði á hlut strax „við fyrsta hana­gal“ morguninn eftir. Nánar til­tekið hafi hann selt á genginu 127, en dagsloka­gengi daginn áður hafði verið 122, og út­boðs­gengið 117.

„Alls voru tæp­lega 1,6 milljónir hluta seldir í Ís­lands­banka á um eða yfir 127 krónur á hlut í 81 við­skiptum um­ræddan dag, þann 23. mars, sam­kvæmt við­skipta­yfir­liti Kaup­hallarinnar. Fjöldi seldra hluta á því verði náði hins vegar ekki milljón fyrr en um há­degis­bil, og stærstu ein­stöku við­skiptin hljóðuðu upp á 481 þúsund hluti sem seldar voru á genginu 126,8 eða 61 milljón króna,“ segir í frétt Við­skipta­blaðsins.

„Sé við­skiptunum skipt upp eftir fjár­mála­stofnun seljanda þrengist leitin enn frekar, en við­mælendur Við­skipta­blaðsins á fjár­mála­markaði segja ó­hætt að full­yrða að seljandinn í sögu Páls hefði selt í gegn um sama aðila þó um mörg við­skipti kynni að vera að ræða. Megnið af seldum bréfum á áður­nefndu verð­bili komu frá Arion banka, alls tæp­lega 1,1 milljón hluta.“

„Með því að púsla saman 5 stórum sölum Arion á um­ræddu gengis­bili er hægt að ná upp í rétt ríf­lega milljón hluti, sem ekki er úti­lokað að hafi allt verið sami sölu­aðili og myndi stemma við sölu­gengið í sögu Páls. Meiri­hluti þeirra við­skipta átti sér hins­vegar ekki stað fyrr en í há­deginu,“ segir þar enn fremur.

Sé tíma­ramma sögu Páls gefið svig­rúm til há­degis er því ekki hægt að úti­loka að hún standist að öðru leyti, en kunninginn hefði þá staðið undir meiri­hluta seldra hluta á áður­nefndu verð­bili þann daginn. Bréfin sem hann seldi hefðu enn­fremur ekki getað verið þau sem hann skráði sig fyrir í út­boðinu, og hefði hann því þurft að eiga seldu hlutina milljón fyrir út­boðið. Þess má að lokum geta að gang­virði bréfanna fór ekki yfir 125 krónur á hlut aftur það sem eftir lifði út­boð­s­vikunnar.