Angjelin Mark Sterkaj, sem játað hefur að hafa orðið Armando Beqirai að bana í Rauðagerði í febrúar, segist hafa verið einn að verki. Þetta kemur framí viðtali við Angeljin sem Fréttablaðið birti rétt í þessu
„Mér þykir mjög miður að fjöldi fólks, sem á engan þátt í því sem ég gerði, hafi verið bendlað við málið og jafnvel þurft að sæta gæsluvarðhaldi, þeirra á meðal Íslendingur sem hefur bæði verið opinberlega nafngreindur og myndir verið birtar af honum með fjölmiðlaumfjöllun um málið,“ segir Angeljin í samtali við Fréttablaðið. Hann er sá eini sem enn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum rennur út 15. maí næstkomandi.
Angjelin segir að eftir að hann losnaði úr einangrun og hafi farið að geta að fylgjast með fjölmiðlum hafi hann orðið var við allskonar sögusagnir og getgátur um málið sem eigi ekki við rök að styðjast.
„Málið er tilkomið af persónulegum ástæðum, sem varðar annars vegar mig sjálfan persónulega og hins vegar gengið sem hinn látni tilheyrði. Alvarlegar hótanir komu fram og atburðarás var farin af stað sem ég get ekki farið nánar út í að svo stöddu,“ segir Angjelin.
Hægt er að lesa viðtal Fréttablaðsins við Angjelin hér.