Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram til 31. mars á næsta ári vegna meintrar árásar í garð móður sinnar í apríl á þessu ári.
Það var stytting á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði gert honum að sæta varðhaldi til 15. september á næsta ári. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðins.
Að sögn móðurinnar hafði sonur hennar veist að sér með ofbeldi, tekið hana ítrekað hálstaki svo hún missti andann, sparkað í bringu hennar og veitt henni högg víðs vegar um líkamann og höfuðið og hótað henni lífláti.
Hún lýsir því að að atlaga sonarins hafi staðið í klukkutíma og segist hún hafa óttast verulega um líf sitt.
„Ég fylgist með þér. Ef þú hreyfir þig þá drep ég þig. Ég skal drepa þig. Ég hika ekki við að drepa þig,“ segir hún son sinn hafa sagt við sig.
Maðurinn hefur áður hlotið dóm fyrir brot í garð foreldra sinna.