Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að velferðarkerfi Íslands hafi verið gert að söluvöru í Venesúela á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Hann krafðist útskýringar á niðurstöðu kærunefndar útlendingamála frá því í fyrra sem opnaði fyrir viðbótarvernd og fjögurra ára dvalarleyfi fyrir alla hælisleitendur frá Venesúela.
„Það er ljóst að Ísland nýtur mikilla vinsælda hjá hælisleitendum frá Venesúela,“ sagði Birgir og vísaði í fjölmiðlaumfjöllun frá því í febrúar um að ferðaskrifstofan Air Viajes í Venesúela hafi verið að auglýsa Ísland sem áfangastað fyrir flóttamenn. Þar var Ísland auglýst sem land með sterkt velferðarkerfi og há meðallaun. „Það er auðvelt að lesa í þessar auglýsingar. Ísland og velferðarkerfið er gert að söluvöru,“ sagði Birgir.
Þorsteinn Gunnarsson, formaður kærunefndar útlendingamála, og Jóna Aðalheiður Pálmadóttir yfirlögfræðingur voru gestir fundarins en fundurinn var haldinn að beiðni Birgis.
Í júlí í fyrra felldi kærunefnd útlendingamála úr gildi niðurstöðu Útlendingastofnunar í máli einstaklings frá Venesúela. Flóttamenn og hælisleitendum frá Venesúela hefur fjölgað til muna á Íslandi síðan þá.
Alls sóttu 1.199 um vernd í fyrra ríflega þrisvar sinnum fleiri en árið á undan. Til samanburðar sóttu einungis 94 frá Venesúela um vernd í Noregi. „Síðastliðna fjóra mánuði eru hælisleitendur frá Venesúela fjölmennasti hópurinn,“ sagði Birgir á fundinum
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins sóttu 408 einstaklingar frá Venesúela um vernd á Íslandi. Á sama tímabili sóttu einungis 10 um í Noregi.
Hér má sjá ítarlega frétt Fréttablaðsins um stöðuna á Íslandi eftir gríðarlega fjölgun hælisleitenda frá Venesúela.