Segir upp á­skriftinni hjá Símanum því þeir sýndu tón­leika Ingós í beinni: „Standið þið ekki örugg­­lega með þol­endum?“

Fernir tón­leikar Ingó Veður­guðs um helgina hafa valdið miklum usla hjá net­verjum á Twitter um helgina. Val­gerður Árna­dóttir, vara­þing­maður Pírata, heimtaði um helgina lista yfir alla sem mættu svo hún gæti forðast þá.

Á sunnu­daginn á­kvað bar­áttu­hópur gegn of­beldis­menningu að beina spjótum sínum að Símanum en fólk gat horft á tón­leika í beinni streymi gegnum sjón­varp Símans en slíkt þykir net­verjum til há­borinnar skammar.

Síminn svaraði bar­áttu­mönnum á þá leið að Síminn veitir þessa þjónustu til allra tón­leika­haldara sem eftir henni óska og við höfum engar for­sendur til að hafna að þjónusta við­burði þar sem lista­mennirnir hafa hvorki verið form­lega á­kærðir né dæmdir fyrir lög­brot.

Valtýr Gunnars­son gekk skrefinu lengra í morgun og ætlar að hætta í á­skrift hjá Símanum.

„Ætla að hætta við­­skiptum hjá Símanum. Ég styð ekki fyrir­­­tæki sem standa ekki með þol­endum. Voda­fone standið þið ekki örugg­­lega með þol­endum?“ skrifar Valtýr á Twitter.

Nokkrir net­verjar benda honum á að Voda­fone sé ekki betra þar sem þeir eru nú með Stöð 2 og FM957 en ekki er gefið frekari skýringar á því.