Segir til greina koma að setja einungis karla í út­göngu­bann

Yfir­völd í Wa­les í Bret­landi segja til greina koma að karl­menn verði settir í tíma­bundið út­göngu­bann frá klukkan sex að kvöldi á svæðum þar sem konur hafa í­trekað lýst yfir miklu ó­öryggi sínu á kvöldin. Þetta segir Mark Dra­k­ef­ord, ráð­herra landsins.

Frá þessu er greint á vef breska götu­blaðsins The Sun. Þar segir að til­laga um slíkt hafi verið lögð fram í opin­berri um­ræðu af Baroness Jones, þing­konu Græningja. Segir Dra­k­ef­ord að ekki sé hægt að úti­loka til­löguna al­farið, en það sé ekki í for­gangi nema í al­var­legri „krísu.“

Hug­myndina að til­lögunni fékk þing­konan í kjöl­far morðsins á Söru E­verard. Ekkert hefur spurst til Söruh frá því hún yfir­­gaf heimili vinar síns mið­viku­­dags­­kvöldið 3. mars í Clap­ham í suður­hluta Lundúna. E­verard, sem er 33 ára markaðs­­stjóri frá York, var klædd í grænan regn­jakka, dökk­bláar buxur með hvítu demanta­­munstri og túrkís- og appel­sínu­gula í­­þrótta­­skó þegar hún hvarf. Lög­­reglu­­maður og kona á þrí­­tugs­aldri sitja í varð­haldi vegna málsins en lög­regla hefur varist allra frétta.

Konur ættu ekki að þurfa að breyta hegðun sinni

Breska götu­blaðið hefur eftir Baroness Jones að hug­mynd hennar sé ekki sett fram af al­vöru, heldur frekar sem hug­vekja. „Ég held að þetta myndi gera konur mun öruggari með sig og alls­konar ógnum myndi fækka,“ segir hún.

Hún segir að það ættu ekki að vera konur sem þurfa að breyta hegðun sinni af öryggis­á­stæðum í kjöl­far morðsins á Söru. „Ef ein­hverjum ætti að vera ráð­lagt að vera heima, ættu það að vera karl­menn en ekki konur,“ segir hún.

„Svona morð eru sjald­gæf en mjög ógn­vekjandi. Það sem er al­gengara eru kyn­ferðis­lega á­reitnin, hótanirnar, köllin og dóna­legu orð­skiptin sem konur upp­lifa á hverjum degi,“ segir hún.

„Myndi lög­reglan sinna starfi sínu myndi þessi menning kven­haturs ekki þrífast. Menn myndu ekki gera ráð fyrir því að komast upp með þetta. Lög­reglan hefur ekki staðið sig í kyn­ferðis­brota­málum í ára­raðir. Þau hafa að mestu klúðrað málunum þegar kemur að heimilis­of­beldi. Lög­reglan þarf að snúa þessu við og venda konur eins og þær eiga skilið.“