Segir þetta ástæðu þess að Guðlaugur Þór vilji ekki ræða málefni

Unga sjálfstæðiskonan Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachman segir að Guðlaugur Þór Þórðarson og fylgisveinar hans gangi fremur illa að útskýra í hverju þær breytingar sem þau boða ættu að felast, öðru en því að nafn formanns flokksins breyttist úr Bjarna Benediktssyni í Guðlaug Þór Þórðarson.

„Málverk af enn einum miðaldra karlinum yrði hengt upp í Valhöll, innan um alla hina miðaldra karlana. Þar er ekki að finna eina einustu konu, enda hefur kona aldrei gegnt formennsku í flokknum frá stofnun hans árið 1929,“ segir Katrín Sigríður.

Segir Guðlaug Þór eiga lítinn séns í tvo kvenskörunga

Hún bendir á að í röðum flokksins séu nú tvær skeleggar ungar konur sem undanfarin ár hafa safnað mikilvægri reynslu sem þingmenn og ráðherrar.

„Svo enginn vafi leiki á er hér rætt um Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Báðar eru þær formannsefni framtíðarinnar og því kann Guðlaugur Þór illa, enda hefur hann undirbúið framboð sitt í formannsstólinn frá því að hann gekk í flokkinn fyrir um fjórum áratugum síðan, eða þar um bil,“ skrifar Katrín Sigríður í aðsendri grein á Vísi.

„Guðlaugur Þór veit sem er að hans tími er liðinn og að hann á litla möguleika á sigri taki hann slaginn við aðra hvora þessara kvenskörunga. Ef æskudraumur hans á að rætast þá er það núna eða ekki, enda yrði auðveldara að verja stólinn en að sækja hann. Þetta er ástæða þess að Guðlaugur Þór fipast og vill ekki ræða málefnalegar áherslur. Hann hefur ekki sýnt að hann hafi burði til að sækja fylgi út fyrir hópinn sinn, líkt og glögglega má sjá ef rýnt er í tölur úr kjördæmi hans - þar sem hann missti þingmann einn oddvita flokksins - og myndir af einsleitum hópi sem sótti framboðsfund hans.“

Beinir sjónum að fortíð

Katrín Sigríður segir Guðlaug Þór í öllum sínum málflutningi beina sjónum að fortíðinni, gömlum slagorðum og sigrum þeirra sem á undan honum gengu, sigrum sem ekki séu hans eigin.

„Hans stærsti sigur er enda að hafa rétt marið Áslaugu Örnu í oddvitakjöri fyrir síðustu kosningar, með örfáum atkvæðum.“

Katrín Sigríður segist að lokum frekar vilja horfa til framtíðar.

„Guðlaugur Þór Þórðarson er ekki framtíð Sjálfstæðisflokksins. Framtíðarsýn mín felst í fjölbreyttari málverkum á vegg Valhallar og fjölbreyttum Sjálfstæðisflokki sem nær út fyrir þá veggi. Konur eru um helmingur kjósenda og þær tengja ekki við málverkin í Valhöll. Eftir tvö ár er styttra í næstu kosningar og þá er rétti tíminn til að skoða breytingar á forystunni. Það vill Guðlaugur Þór koma í veg fyrir.“

Hún segir þau sem vilji raunverulegar breytingar á flokknum og sækja aukið fylgi ekki fá það „ með atkvæði greiddu Guðlaugi Þór Þórðarsyni, svo mikið er víst.“