Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir það skjóta skökku við að konum verði ekki lengur boðið í skimun fyrir brjóstakrabbameini við fertugt heldur um fimmtugt. Þetta hefur Vísireftir henni.
Í byrjun árs var krabbameinsskimun færð frá Krabbameinsfélaginu og til heilsugæslna. Hingað til hefur konum á aldrinum 40-69 ára verið boðið í skimun fyrir krabbameini í brjóstum en nú verður konum á aldrinum 50-74 ára boðið í skimun.
Þorbjörg segir það jákvætt að þjónustan sé boðin lengur en verið hefur. Það sé hinsvegar neikvætt að yngri konur missi þessa þjónustu. Lágmarkskrafa sé að stjórnvöld rökstyðji þessar breytingar.
„Eitthvað sem eðlilega vekur upp spurningar og jafnvel kvíða og ótta. Þá hlýtur það að vera lágmarks krafa til stjórnvalda að þetta sé kynnt með þeim hætti að konur geti verið í einhverri vissu með það að þetta hafi ekki í för með sér neikvæð áhrif á þeirra stöðu,“ segir Þorbjörg.
„Ég verð að viðurkenna að það fór um mig, mér finnst þessar fréttir óþægilegar og maður gerir ráð fyrir að það séu rök þarna á baki. Ég myndi halda að konur og allur almenningur eigi rétt á því þegar verið er að færa aldursviðmiðið upp um heil tíu ár þá fylgi því almennileg kynning um það hvað býr þarna að baki og með hvaða hætti staða kvenna sé jafn góð á eftir,“ segir Þorbjörg.