Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International fer hörðum orðum um gagnrýni Baldurs Þórhallssonar stjórnmálafræðiprófessor vegna varnarmála á Íslandi og skort á varnarstefnu stjórnvalda. Hann segir Baldur gleyma Sjálfstæðisflokknum sem beri höfuðábyrgð á málaflokknum.
Tilefnið eru skrif Baldurs frá því í gær sem vöktu mikla athygli. Þar gagnrýndi hann meðal annars VG og sagði að Íslandi skorti varnarstefnu sem taki mið af nýjum veruleika í Evrópu.
Atli Þór segir Baldur Þórhalls byssuglaðan háskólaprófessor. Hann segir hann auk þess höfund shelter theory sem sé óþekkt og segir Baldur án viðurkenningar utan Íslands sem sérfræðings í varnarmálum.
„Nú er ég sjálfur mikill aðdáandi þess að gagnrýna hið tilgangslausa stjórnmálaafl VG en gagnrýni prófessorisins hefur verið afar ósanngjörn og Sjálfstæðisflokkurinn er svo til stikkfrír i gagnrýni síðustu vikna,“ skrifar Atli Þór.
„Það skal reyndar tekið fram að ég er sammála gagnrýninni að því leiti að skömm er af því hvað Ísland fjárfestir lítið í eigin varnar og öryggismálum (en er ekki sannfærður um sömu áherslur) . Það er hættulegur leikur og gerir okkur svo vitnað sé í prófessorinn að veikasta hlekknum. Hins vegar skiptir máli að varnarmálin séu ekki gegnumsýrð af meðvirkniskúltúrnum íslenska þar sem hlaupin eru heil maraþon til þess að forðast að gagnrýna það stjórnmálaafl sem er eins og mara yfir öllu í landinu.“
Atli spyr hvers vegna prófessorinn gagnrýni VG en ekki flokkinn sem fari með þessi mál í gegnum utanríkisráðuneytið.
„Flokkinn sem raunar hefur alltaf farið með þessi mál og í stað þess að fjárfesta í þekkingu hefur raðað fyrrverandi ráðherrum og vinum í verkefni og stöður...“