Segir Sjálf­stæðis­flokkinn ætla að færa sig nær Mið­flokknum

Þor­steinn Páls­son, fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segir ljóst að flokkurinn ætli sér að færa sig nær Mið­flokknum í and­stöðu sinni við EES samninginn.

Þetta kemur fram í pistli Þor­steins sem birtist í Frétta­blaði dagsins. Þar bendir Þor­steinn á að Vil­hjálmi Bjarna­syni, fyrr­verandi al­þingis­manni, hafi verið skipt út í 5. sæti í Suð­vestur­kjör­dæmi fyrir Arnar Þór Jóns­son, héraðs­dómara.

Arnar Þór fór mikinn í bar­áttu sinni gegn þriðja orku­pakkanum á sínum tíma. „Sjálf­­stæð­is­­menn í suð­vest­ur­­kjör­­dæm­i á­kváð­u ný­­leg­a að setj­a í bar­átt­u­­sæt­i á list­a sín­um í þess­u sterk­ast­a vígi flokks­ins einn hel­st­a and­ófs­mann EES-samn­ings­ins, sem auk þess var aðal hug­­mynd­a­­fræð­ing­ur­inn í and­­stöð­unn­i við þriðj­a ork­u­­pakk­ann. Áður skip­að­i þett­a sæti tals­mað­ur frjáls­­lyndr­a við­horf­a í flokkn­um.“

Þor­steinn segir þetta skýr skila­boð um að Sjálf­stæðis­flokkurinn muni leggja aukna á­herslu á and­óf sitt gegn EES og færa sig nær Mið­flokknum. „Vinn­i flokk­ur­inn sæt­ið má reikn­a með fleir­i upp­­á­kom­um við inn­­leið­ing­u regln­a á grund­vell­i EES-samn­ings­ins. Verð­i báð­ir flokk­arn­ir í næst­u rík­is­­stjórn er eins lík­­legt að end­ur­­skoð­un samn­ings­ins um Evrópsk­a efn­a­hags­­svæð­ið verð­i haf­in.“

Pistill Þor­steins á vef Frétta­blaðsins.