Segir Sigurð Inga ekki hafa mætt í þing­sal í mánuð og svarað fyrir um­mælin sín

Lenya Rún Taha Ka­rim, vara­þing­maður Pírata, fer hörðum orðum um Sigurð Inga Jóhanns­son, inn­viða­mála­ráð­herra í nýrri Twitter færslu.

„Sigurður Ingi var að segja…að það sé verið að grilla hann útaf því það eru að koma…sveitar­stjórnar­kosningar?
Hann hefur ekki mætt í þing­sal í mánuð og svarað fyrir um­mælin sín? Guð minn al­máttugur,“ skrifar Lenya.

„Með því að neita að taka á­byrgð fyrir þinginu hefur hann á­kveðið að senda skýr skila­boð til þjóðarinnar um að svona orð­ræða sé gúdderuð innan sam­fé­lagsins, ég er með­limur þessa þings og þetta sendir SKÝR skila­boð til mín sem og allra 15% lands­manna sem eru af er­lendum upp­runa.“

Að síðustu skorar Lenya á þing­menn Fram­sóknar að taka á­byrgð. „Elsku þing­menn Fram­sóknar: takið bara á­byrgð og for­dæmið kyn­þátta­hatur, það vill enginn heyra á hvaða málum þið hafið verið fram­sögu­menn á.“