Segir Sam­fylkinguna hafa misst kjarkinn

Erlingur Sig­valda­son for­seti Upp­reisnar ung­liða­hreyfingar Við­reisnar skýtur föstum skotum á Sam­fylkinguna og segir flokkinn hafa misst kjarkinn í Evrópu­málum.

Hann segir á­huga fólks á því að hefja aðildar­við­ræður við Evrópu­sam­bandið sjaldan hafa verið jafn mikinn og núna, það sýni könnun eftir könnun.

„Það er því furðu­legt að á lands­fundi Sam­fylkingarinnar um helgina kvað við nýjan tón í flokknum. Aðild Ís­lands að Evrópu­sam­bandinu er ekki lengur á dag­skrá hjá flokknum og þar með fækkaði val­kostum evrópu­sinna í kjör­klefanum,“ skrifar Erlingur í að­sendi grein á Vísi.

Hann segir Sam­fylkinguna hafa verið hug­rökk á sínum tíma þegar flokkurinn sótti um aðild og að það sé miður að flokkurinn hafi týnt kjarkinum og vilji núna fela stefnu­málið á blað­síðu 62 af 64.

„Í stefnu­ræðu sinni sagðist Krist­rún að ekki væri hægt að þylja upp gömlu rökin heldur að hefja þyrfti að nýju rann­sókn á kostum og göllum aðildar. Þar hefur Krist­rún alveg rétt fyrir sér að um­ræðan þarf að vera lifandi og ekki byggð á gögnum sem eru ára­tuga gömul, en það sem Krist­rún á­varpar ekki í ræðu sinni er það hvernig Sam­fylkingin ætlar að byrja þetta nýja sam­tal. Sam­fylkingin virðist því sópa þessu mikil­væga máli til hliðar.“

Erlingur segir Við­reisn eina flokkinn sem hafi sett aðild Ís­lands að ESB í for­gang. Um sé að ræða eitt stærsta hags­muna­mál þjóðarinnar.

„Þótt Evrópu­sam­bandið sé engin töfra­lausn fyrir Ís­land þá er það mikil­vægt skref í átt að því að byggja betra sam­fé­lag. Bar­áttan fyrir aðild vinnst ekki á því að sleppa því að taka um­ræðuna heldur vinnst hún á því að flokkar með mis­munandi hug­mynda­fræði taki höndum saman og tali fyrir henni af sann­færingu og rök­festu.“

Hann segir sig og fé­laga sína í Við­reisn halda um­ræðunni ó­trauð á­fram. „Með von um að Sam­fylkingin fari að taka sam­talið, sem þeim greini­lega hefur vantað, um kostina sem því fylgja að Ís­land gangi í Evrópu­sam­bandið.“