Segja má að margir hafi andað léttar þegar ákveðið var að afnema grímuskylduna að stærstum hluta í gær. Undanfarnar vikur hefur gengið ágætlega í baráttunni gegn útbreiðslu COVID-19.
Ekki eru þó allir á því að tímabært sé að afnema grímuskylduna, nú þegar ferðamönnum er farið að fjölga á nýjan leik og veiran er enn að grassera í samfélögunum í kringum okkur.
Fjölmargir hafa látið til sín taka á Twitter og meðal annars gagnrýnt umræðuna í kringum afléttingu grímuskyldunnar. Þá virðast aðrir þeirrar skoðunar að ekki sé tímabært að aflétta grímuskyldunni.
Sama fólk og talaði um að treysta Þórólfi og sérfræðingum er núna að efast um að við getum sleppt grímum þó að Þórólfur hafi lagt það til og meti það óþarft.
— Hans Orri (@hanshatign) May 26, 2021
Þríeykið: jæja, engin grímuskylda.
— Olga Cilia (@olgacilia) May 25, 2021
Íslenskt samfélag í mótþróa: JÁ ÞAÐ VAR MIKIÐ ÉG ÆTLA AÐ HÓSTA Á ALLT Í BÚÐINNI.
Þríeykið eftir 2 daga: jæja, 100 smit hafa greinst frá afléttingu grímuskyldu.
Íslenskt samfélag: HVAÐA HELVÍTIS VITLEYSA AÐ AFNEMA GRÍMUSKYLDUNA!
Kæru Íslendingar,
— Eirikur Ragnarsson (@eikonomics_eiki) May 21, 2021
Haldið áfram að nota grímur þegar þið farið í verslanir.
Það kostar ykkur ekkert en ver samborgara ykkar fyrir stórhættulegum sjúkdómi.
Það kemur að því að við hættum að grímast en verum tillitssöm þangað til allir sem vilja eru komnir með lágmarks vörn. https://t.co/nnJjZP41kH
Ekki lengur grímuskylda, en vá hvað ég vona að við Íslendingar lærum eitthvað af þessu og hættum að mæta í vinnuna veik eða með kvef. Og ef það er algjör nauðsyn að mæta að gera þá eins og japanarnir (og aðrar þjóðir) og sýna fólki virðingu með því að mæta með grímu. #grímuskylda
— Jakob Ó (@jakobomars) May 25, 2021
Allt eðlilegt hér. Hættum að spá í covid. pic.twitter.com/sLo13yx8Ee
— Jói (@3M7cv2) May 25, 2021
Sé að það er búið að afnema grímuskyldu. Nú er fyrst ástæða til að setja upp helvítis grímuna!
— Hrafnkell Sigurðsson (@hrafnkellsig) May 25, 2021
"Er í sjokki að allir séu að taka grímurnar af sér strax!" ... "Er í sjokki að fólk sé að skipta sér af því að maður sé búin að taka grímuna af sér!" Twitter er orðið svo fyrirsjáanlega súrt dæmi.
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) May 26, 2021
Twitter í dag: Ah gaman að vera laus við grímuna svo börnin mín sjái mig brosa
— Þórunn Jakobs 🇵🇸 (@torunnjakobs) May 25, 2021
Líka Twitter í dag: Ég ætla að vera áfram með grímu því ég er ✨ betri en þið ✨
Það er þetta með að flýta sér að hætta grímunotkun og skella sér í orgíu!https://t.co/haB75FhaxO
— Matthías Ásgeirsson (@orvitinn) May 26, 2021