Segir Ragnar hafa svikið fé­lags­menn VR fyrir Sól­veigu Önnu: „Enginn fótur var fyrir þessum full­yrðingum“

Kristjana Val­geirs­dóttir, fv. fjár­mála­stjóri Eflingar og fé­lags­maður í VR, gagn­rýnir Ragnar Þór Ingólfs­son for­mann VR harka­lega í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Hún segir Ragnar Þór hafa tekið af­stöðu gegn sér og fleiri starfs­mönnum Eflingar sem höfðuðu mál gegn Sól­veigu Önnu for­manni Eflingar en Sól­veig var dæmd fyrir mein­gjörð og vonda fram­komu gegn starfs­fólki á skrif­stofu Eflingar.

Kristjana byrjar grein sína á að vitna í orð Ragnars:

„Til fé­lags­manna innan raða ASÍ vil ég segja að á­tökin innan Eflingar snúast um hat­ramma valda­bar­áttu. Valda­bar­áttu sem á rætur sínar að rekja til SALEK-hópsins, sömu fjöl­miðla og standa fremstir í því að tala niður bar­áttu vinnandi fólks. Valda­bar­áttu sem snýr að á­sökunum um fjár­drætti og aðra glæpi sem inni­halda lítið annað en efni í góðar fyrir­sagnir sér­hags­muna­miðla. Valda­bar­áttu sem er drifin á­fram af botn­lausu og ó­út­skýrðu hatri.“

„Ofan­greind til­vitnun er úr grein sem Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, skrifaði á Vísi.is 9. mars 2022. Greinin fjallar nánast öll um átök sem hann lýsir innan ASÍ og verður ekki um­ræðu­efni hér. Vakin er hins vegar hér at­hygli á því að Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, velur þá leið að tengja réttinda­bar­áttu nokkurra starfs­manna Eflingar við það sem hann kallar valda­bar­áttu innan ASÍ. Enginn fótur var fyrir þessum full­yrðingum,“ skrifar Kristjana í Morgun­blaðinu.

„Or­saka­sam­hengið var aug­ljós­lega ekkert. Hvergi kemur fram hvernig við starfs­menn Eflingar tengdumst valda­bar­áttu sem hann nefnir. Ekkert okkar hefur tengst stjórn­mála­bar­áttu eða verið fé­lags­lega kjörið innan stéttar­fé­laga og við látið þannig að okkur kveða með pólitískri bar­áttu innan fé­laga ASÍ, VR eða Eflingar. Ragnar Þór Ingólfs­son er for­maður VR. Einn af fyrr­verandi starfs­mönnum Eflingar sem hann vísar hér til er fé­lags­maður VR og er undir­rituð, Kristjana Val­geirs­dóttir. Ég hafði á þessum tíma verið fé­lags­maður VR í hart­nær 40 ár. Ég átti mér ára­tugum saman feril sem gjald­keri Verka­manna­fé­lagsins Dags­brúnar og síðar fylgdi ég fé­laginu inn í sam­einingar­feril eldri fé­laga sem sam­einuðust í Eflingu. Það má vel halda því fram að ég hafi á­samt fé­lögum mínum átt far­sælan feril sem gjald­keri Dags­brúnar og síðar fjár­mála­stjóri sam­einaðra stéttar­fé­laga, síðast Eflingar – stéttar­fé­lags um 18 ára skeið,“ heldur hún á­fram.

Hún segist aldrei hafa blandað sér í fé­lags­mál stéttar­fé­laganna eða sam­taka þeirra.

„Skipti mér aldrei af deilum um SALEK. Ég hef aldrei nokkurn tímann skipt mér af meintri valda­bar­áttu innan ASÍ. Aldrei voru gerðar at­huga­semdir við starf mitt hjá Eflingu eða Dags­brún og endur­skoð­endur fyrir­tækisins Deloitte sem enn starfar fyrir Eflingu luku alla tíð lofs­orði á störf mín sem gjald­kera og fjár­mála­stjóra. Það er ekki fyrr en Sól­veig Anna Jóns­dóttir varð for­maður Eflingar og Viðar Þor­steins­son varð fram­kvæmda­stjóri sem þau hófu skipu­lagða að­för að mér þannig að ég hrökklaðist í veikinda­leyfi og komst vegna veikinda og van­líðunar eftir starfs­tíma undir þeirra stjórn aldrei til starfa að nýju hjá Eflingu. For­maður VR, Ragnar Þór Ingólfs­son, taldi sér sæmandi að lýsa því sjónar­miði sem for­maður í stéttar­fé­lagi fé­lags­manns VR að enginn fótur væri fyrir stefnum starfs­manna Eflingar á hendur for­ystu­mönnum fé­lagsins.“
„Hann tók sér stöðu gegn fé­lags­manni sínum í máli þar sem fé­lags­maðurinn er að krefjast réttinda og kjara sam­kvæmt kjara- og ráðningar­samningum. Þarna tók hann stöðu með öðrum for­manni innan ASÍ, Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur, sem og Viðari Þor­steins­syni, fram­kvæmd­stjóra Eflingar, sem bæði hafa verið borin sökum um and­legt of­beldi, ein­elti og kyn­bundna á­reitni gagn­vart starfs­mönnum sínum. Þetta hlýtur að vera al­ger­lega ein­stakt til­vik í sögu verka­lýðs­hreyfingarinnar,“ skrifar Kristjana.

Hún segir að þegar fé­lags­maður hefur barist fyrir réttindum sínum og kjörum árum saman og málið er komið til dóm­stóla, þá kveður for­maður VR upp dóm í máli fé­lags­mannsins.

„Þarna fór for­maður VR gegn fé­lags­manni sínum sem hann átti að verja. En meira en það. For­maður VR heldur því fram „að bar­átta starfs­manna Eflingar undan­farin ár sé hluti af valda­bar­áttu sem rekja megi til SALEK-hópsins og fjöl­miðla sem tala niður bar­áttu vinnandi fólks, valda­bar­áttu sem drifin er á­fram af botn­lausu og ó­út­skýrðu hatri“. Engar af þessum full­yrðingum er hægt að sanna með rök­semdum eða til­vitnunum í um­mæli eða gerðir fyrr­verandi fjár­mála­stjóra eða starfs­manna Eflingar.“

„Tónninn í þessum um­mælum er auð­þekkjan­legur. Hann er sá sami og for­svars­menn Eflingar hafa við­haft um starfs­menn fé­lagsins. En þessar tengingar formannsins eru út í hött. Það er sorg­legt í þessu máli að Ragnari Þór Ingólfs­syni var vel kunnugt um alla mála­vexti í máli mínu hjá Eflingu. Ég leitaði að­stoðar VR í málinu á sínum tíma. Málið kom í­trekað inn á borð hans og for­svars­menn VR hafa fjallað um það. Ég hef hins vegar ekki hug­mynd um hvort þetta mál mitt var nokkurn tíma rætt á stjórnar­fundum í VR.“

„Dómur var kveðinn upp í máli mínu í Héraðs­dómi Reykja­víkur í desember. For­maður Eflingar, Sól­veig Anna Jóns­dóttir, var þar dæmd fyrir mein­gjörð og vonda fram­komu gagn­vart tveimur fé­lags­mönnum Eflingar og einum fé­lags­manni VR, mér, Kristjönu Val­geirs­dóttur, fyrr­verandi fjár­mála­stjóra. Sleggju­dómar formanns VR um mig, fé­lags­mann VR, voru aldrei byggðir á neinum hald­bærum rökum. Sjónar­mið hans var brot á öllum siða­reglum í stéttar­fé­lagi. Hann tók af­stöðu með Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur í mann­réttinda­brotum hennar gagn­vart starfs­mönnum Eflingar. Þessa ömur­legu af­stöðu tók hann fram yfir réttindi fé­lags­manns sem honum bar að verja. Allt er þetta mál honum til mikillar van­sæmdar,“ skrifar Sól­veig Anna að lokum.