Segir ósannindi og niðurlægingar fylgja stjórnmálum á Akureyri: „Mun erfiðara en ég átti von á“

„Fyrsti bæjarstjórnarfundur nýs kjörtímabils er í dag, svekkelsið eftir kosningarnar er að renna af mér og svei mér þá ef ég er ekki bara nokkuð spennt fyrir því að vera í minnihluta.“

Svona hefst færsla Hildu Jönu Gísladóttur, bæjarfulltrúa á Akureyri, þar sem hún fjallar um eigin stöðu í stjórnmálunum. Hún viðurkennir að það gæti hljómað óvenjulega að hún sé spennt fyrir því að vera í minnihluta, en ætlar frekar að líta á björtu hliðarnar.

„Það hljómar líklega mjög undarlega því auðvitað hefði ég miklu frekar kosið að hafa fengið betri kosningu og vera í meirihluta. Hins vegar þegar að annar veruleiki blasir við en sá sem ég óskaði mér, þá er það mér eðlislægt að horfa á björtu hliðarnar, því það er einfaldlega svo miklu skemmtilegra. Ég t.d hlakka mjög mikið til þess að þurfa ekki lengur að semja um mál innan meirihluta, heldur geta haft mína skoðun og komið henni á framfæri án þess að vera nokkrum öðrum háð.“

Þá ræðir Hilda um það neikvæða sem fylgir stjórnmálunum, og segir að það hafi verið erfitt að takast á við ýmsa hluti. Þar nefnir hún að baktal, niðurlægingu og ósannindi.

„Þegar ég byrjaði í stjórnmálum lofaði ég sjálfri mér að eiga aðeins einn dómara og það væri mín eigin spegilmynd. Það verður þó að viðurkennast að það hefur verið mun erfiðara en ég átti von á upplifa öskur, baktal, niðurlægingu og ósannindi. Ég skal alveg viðurkenna að stundum hef ég bognað, en ég hef þó aldrei nokkru sinni brotnað.“

Að lokum skrifar hún að hún hafi einnig upplifað jákvæða hluti og segist stolt af sínum stöfrum og ætlar að halda áfram að leggja sitt að mörkum.

„Ég hef líka upplifað mikið þakklæti, hrós og ómetanlegan stuðning sem hvetur mig svo sannarlega áfram. Spegilmyndin mín er mjög stolt af mér, ég er sterkari og staðfastari en nokkru sinni áður, ég veit hvað ég hef gert og fyrir hvað ég stend. Ég hef lagt mig alla fram, náð fram mörgum góðum málum, verið heiðarleg og málefnanleg, sýnt mannvirðingu og kærleika í öllum mínum störfum og alltaf munað að ég er fyrst og fremst þjónn bæjarbúa. Þannig mun ég halda áfram að starfa og hlakka til að vinna vel fyrir bæinn minn næstu fjögur árin.“