Segir móður sína hafa verið tekna af lífi: „Verst er að öll þessi um­ræða er að skyggja á allar fal­legu minningarnar“

Dag­bjartur E. Taylor, sonur Ólafíu Krist­nýjar Ólafs­dóttur, sem lést á Heil­brigðis­stofnun Suður­nesja í desember 2019 segir í sam­tali við Vísir.is að móðir sín hafi verið tekin af lífi.

Lög­reglan rann­sakar and­lát Ólafíu um þessar mundir en það tengist svo­kölluðum til­efnis­lausum lífs­loka­með­ferðum af hálfu Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar læknis. Fimm and­lát eru til skoðunar hjá lög­reglunni.

Ólafía greindist með fjórða stigs krabba­mein í júní 2019 og lést hálfu ári síðar. Fjöl­skyldan segir að hún hafi verið sett í lífs­loka­með­ferð þeim ó­af­vitandi og án nokkurs sam­ráðs.

„Það er rosa­lega erfitt að rifja þetta allt upp, rífa upp þessi sár. Það sem mér finnst eigin­lega verst er að öll þessi um­ræða er að skyggja á allar fal­legu minningarnar sem ég á af henni mömmu. Í staðinn fyrir eitt­hvað sem er fal­leg og góð minning kemur bara enda­laus reiði og heift,“ segir Dag­bjartur í sam­tali við Vísi.

„Ég hef ekkert tjáð mig um þetta al­menni­lega hingað til. En þegar ég sá alla þessa flóð­bylgju af læknum stíga fram og tjá sig, það vakti upp í mér svo rosa­lega mikla reiði. Ég er eigin­lega bara búinn að vera ó­nýtur síðustu tvær vikur,“ segir Dag­bjartur.

Hægt er að lesa við­talið á vef Vísir.is hér.