Segir menningarelítuna blinda á eigin for­réttindi: „Blasti við þegar ég las bóka­blað Stundarinnar“

Rit­höfundurinn Berg­lind Ósk skrifar ansi á­huga­verða hug­vekju á bloggi sínu berg­lindosk.is um jóla­bóka­flóðið en hún segir það blasi við að menning á Ís­landi sé stétta­skipt.

„Ein á­stæða þess að mér finnst ég eiga erindi sem rit­höfundur er að ég kem ekki af menningar- eða lista­fólki, ég er hrein­ræktað verka­lýðs­barn en rit­höfundum úr verka­lýðs­stétt fer ört fækkandi. Það er ein af á­stæðunum fyrir að ég fór í rit­list, ég þráði að kynnast öðru fólki sem væri að skrifa,“ skrifar Berg­lind.

„Það er mjög erfitt að komast að þegar maður þekkir engan, og ég held að kúltúr­börnin geri sér ekki grein fyrir for­réttindunum sem þau fæðast inni í: að fá leið­sögn frá ein­hverjum sem þekkir geirann, vera um­kringdur „réttu” bók­menntunum (og skoðunum á þeim), tengslin og reddingarnar. Í rit­listinni kynntist ég fullt af frá­bæru fólki og það opnar kannski ein­hver tæki­færi seinna meir, en eins og er, stend ég fyrir utan klíkuna. Svo er það líka bara hvernig maður spilar úr hlutunum, til dæmis myndi ég ekki nota kvót frá Steinari í tengslum við mína bók (þótt hann skrifaði það áður en við byrjuðum saman)“ bætir hún við.

Hún segir að þetta blasti svo aug­ljós­lega við þegar hún las síðasta bóka­blað Stundarinnar. „Það var ein­hvern veginn ekki einu sinni verið að reyna að fela þetta. Í fyrsta lagi er mjög skrýtið að rit­höfundur rit­stýri bóka­blaðinu (hags­muna­á­rekstur, ein­hver?) en svo sem mjög ís­lenskt.“

  • Auður Jóns ritstýrir, barnabarn Halldórs Laxness
  • Aðalviðtalið í blaðinu er við Halldór teiknara sem var að gefa út bókina Hvað nú – myndasaga um menntun, Halldór frábær maður og teiknari en frekar spes að gefa þessari bók stærsta plássið. Ætli það spili eitthvað inn í að Halldór sé besti vinur fyrrverandi hennar Auðar?
  • Kamilla Einars gefur pabba sínum, Einari Kára, pláss í bókakokteilnum sínum og hrósar aðalfyrirmynd sinni í lífinu, henni Auði, í pistlinum sínum.
  • Hitt viðtalið í blaðinu er við Ragnar Helga og Kjartan Örn Ólafssyni, um minningu foreldra þeirra sem voru bókaútgefendur, fallegt viðtal við fólk sem er fætt inn í geirann.

„Það þarf varla að minnast á að Auður og Kamilla eru mjög áberandi í bókmenntum og virðast auðveldlega fá tilnefningar og tækifæri,“ skrifar Berglind.

„Ég hef allavega ekki fengið umfjöllun í þremur bókablöðum Stundarinnar, hverju svo sem það sætir. Auðvitað eiga ekkert allir höfundar „rétt” á því að fá umfjöllun þar en Breytt ástand hefur vakið athygli og fengið lof svo ég já, bjóst eiginlega við að fá gagnrýni þarna.

Þetta eflir mig samt bara í að skrifa betri bækur og stefna líka á útlönd. Geirinn hérna heima er svo pínku pínku lítill,“ skrifar Berglind að lokum.