Sigurður Már Jónsson, blaðamaður, hjólar í meirihlutann í Reykjavík, í grein sem birtist á mbl.is.Þar segir hann meirihlutann afvegaleiða umræðuna um lóðaskort í Reykjavík.
Hann fullyrðir að allir viti að skortur á lóðum á höfuðborgarsvæðinu sé ein höfuðástæða þróunar fasteignaverðs í borginni og þess mikla vanda sem er á fasteignamarkaði. „Allir nema meirihlutinn í Reykjavík
sem beitir sjónhverfingum og umræðustjórnun til
að afvegaleiða umræðuna,“ skrifar Sigurður.
Hann vitnar meðal annars til orða forstjóra Byko, Sigurðar Pálssonar, Ragnars Þórs Ingólfssonar og Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um lóðaskortinn.
Sigurður Pálsson segir Reykjavíkurborg bera mesta ábyrgð á ástandinu. „Borgin hefur staðið sig hvað verst í að úthluta lóðum. Þegar íbúðaskortur er ríkjandi hækkar fasteignaverð og það fer beint inn í verðbólguna sem skilar sér svo beint í minni kaupmætti heimilanna. Af einhverri ástæðu horfir Reykjavíkurborg ekki til þessara gagna og dregur lappirnar við að úthluta lóðum, sem veldur ójafnvægi.“